Fyrstu stjörnurnar og rannsóknir á hjara veraldar
Fyrstu stjörnurnar og rannsóknir á hjara veraldar
Sjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjarnvísindafélag Íslands ásamt Háskóla íslands kynna: Fyrstu stjörnurnar og rannsóknir á hjara veraldar. Dr. Cynthia Chiang, dósent í eðlisfræði við McGill University heldur erindi.
Staður og stund: Hús Vigdísar klukkan 20:00 þriðjudaginn 7. maí.
Erindið verður haldið á ensku.
Öll velkomin!
Ágrip á íslensku (þýðing)
Hvernig var alheimurinn þegar fyrstu stjörnurnar litu dagsins ljós? Við vitum ósköp lítið um tímabilið í sögu alheimsins sem kalla mætti hina fyrstu dögun. Þótt ótrúlegt megi virðast, þá eru samt til leiðir til þess að rýna í þetta tímabil. Daufar útvarpsbylgjur sem stafa frá ójónuðu vetni, algengasta frumefninu í alheiminum, gefa vísbendingu um geislun frá fyrstu stjörnunum. Rannsóknir á þessum bylgjum krefjast sérhannaðra útvarpssjónauka sem eru staðsettir í útnárum jarðarinnar til þess að sleppa undan suði af mannavöldum, m.a. frá útvarps- og sjónvarpsstöðvum. Í þessum fyrirlestri mun Dr. Cynthia Chiang lýsa störfum rannsóknarhópsins sem hún leiðir sem snúa t.d. að hönnun, smíði, og gangsetningu á útvarpssjónaukum á sumum af afskektustu stöðunum á jörðinni, þar á meðal á Axel Heiber eyju í norðurhluta Kanada og Marion eyju sem er mitt á milli Suður Afríku og Suðurskautslandsins. Ekki missa af þessum áhugaverða fyrirlestri um rannsóknir sem gætu svipt hulunni af lítt þekktu tímabili í frumbernsku alheimsins.